Landsnefnd um mannúðarrétt
Landsnefnd
Ársskýrsla
Starfsreglur
Samanburðarskýrsla

Landsnefnd um mannúðarrétt

Landsnefnd um mannúðarrétt var stofnuð í apríl 2008. Hlutverk nefndarinnar er að breiða út þekkingu á alþjóðlegum mannúðarrétti, vera vettvangur umræðna um alþjóðlegan mannúðarrétt og veita stjórnvöldum ráðgjöf varðandi túlkun og framkvæmd mannúðarréttar. Nefndina skipa fulltrúar frá utanríkisráðuneyti, dóms- og kirkjumálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, félags- og tryggingamálaráðuneyti, menntamálaráðuneyti og frá Rauða krossi Íslands.

Helstu verkefni nefndarinnar eru:

-    Að meta núgildandi lagaramma með tilliti til Genfarasamninganna, bókana þeirra og annarra mannúðarlaga.
-    Að hafa leiðbeinandi hlutverk um túlkun og framkvæmd mannúðarréttar og standa vörð um mannúðarrétt á Íslandi.
-    Að stuðla að kynningum á alþjóðlegum mannúðarrétti innan Stjórnarráðs Íslands og utan þess. Stuðla að rannsóknum á mannúðarrétti og setja fram tillögur að verkefnum sem hafa það að markmiði að efla þekkingu á mannúðarrétti, meðal annars á meðal lögreglu, friðargæslu og annarra hópa á ýmsum stigum menntakerfisins svo og á meðal almennings.
-    Að fara gaumgæfilega yfir ákvæði íslenskra laga er varða stöðu Rauða kross Íslands og meta þörfina á því að sett verði sérstök lög um Rauða krossinn.
-    Að taka þátt í undirbúningi fyrir alþjóðaráðstefnur Rauða kross hreyfingarinnar.

Hér má lesa hverjir eiga sæti í landsnefndinni og einnig starfsreglur nefndarinnar

Ársskýrslu landsnefndarinnar fyrir árið 2009 má finna hér

Á árinu 2009 var unnin skýrsla um helstu samninga á sviði alþjóðlegs mannúðarréttar sem gerðir hafa verið og álitamál varðandi stöðu Íslands. Skýrsluna má nálgast hér