Hugsjónir, leiðarljós og stefna
Stefna
Stefna í pdf
Grundvallarhugsjónir
Umhverfisstefna

Stefna til 2020

Rauði kross Íslands samþykkti í dag á aðalfundi sínum 21. Maí 2011 nýja stefnu til grundvallar starfsemi félagsins til ársins 2020. Stefnan er unnin í samræmi við sameiginlega stefnu 186 landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem samþykkt var á aðalfundi Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem haldinn var í Naíróbí í nóvember 2009.

Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans setur sér jafnan sameiginlega stefnu á 10 ára fresti sem starfað er eftir í 186 löndum. Þetta leggur grunninn að því samhæfða starfi sem unnið er um allan heim í nafni Rauða krossins og Rauða hálfmánans og byggt er á grundvallarhugsjónum um mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðna þjónustu, einingu og alheimshreyfingu.

Yfir 200 sjálfboðaliðar um allt land komu að mótun nýrrar stefnu Rauða kross Íslands og miðluðu þannig af þekkingu sinni og reynslu af störfum fyrir félagið. Áhersluverkefni Rauða krossins á næstu tíu árin eru að sinna neyðaraðstoð vegna áfalla og hamfara, að sýna mannúð og veita félagslegt öryggi, og sjá til þess að Rauði kross Íslands sé öflugt og vel starfandi Rauða kross félag.

Stefna til 2020 pdf

Stefnan til 2020 enska