Starf deildarinnar byggist að verulegu leyti upp á sjálfboðaliðum og hafa þeir margvísleg hlutverk. Má þar nefna sem dæmi vinnu við neyðarvarnir, vinnu með fötluðum í opnu húsi, heimsóknarvini, vinnu við móttöku og flokkun á fatnaði, vinnu við sumarbúðir og fleira. Sjálfboðaliðum býðst margvísleg fræðsla sem tengist verkefnum þeirra, svo sem fjöldahjálparnámskeið, námskeið um heimsóknarþjónustu og fleira. Þeir sem hafa áhuga á að gerast sjálfboðaliðar hjá Skagafjarðardeild RKÍ geta haft samband í síma 453-6500 eða skrifað okkur á netfang rki (hja) saudarkrokur.net