Skagafjarðardeild
Stjórn
Starf með fötluðum
Sjálfboðið starf
Neyðarvarnir
Ungliðadeild
Fataflokkun
Alþjóðastarf
Heimsóknaþjónusta
Námskeið

Alþjóðastarf

Ásamt öðrum deildum á svæðinu hefur Skagafjarðardeild verið í vinadeildarsamstarfi við landsfélag Rauða krossins í Mósambik.  Aðstoð þangað hefur verið í formi fjárhagsaðstoðar, fatasendinga og sölu á batekmyndum til styrktar leikskóla á svæðinu. Skagafjarðardeild hefur sinnt þeim beiðnum sem koma frá Landsskrifstofu Rauða krossins vegna neyðarástands víða um heim.  Meðal annars hafa sjálfboðaliðar gengið til góðs í Skagafirði og hefur þá verið farið á hvern bæ þó um miklar vegalengdir sé að ræða.