3000 sjálfboðaliðar starfa á vegum Rauða kross Íslands.
Það eru margir möguleikar fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar Rauða krossins:
- Sjálfboðaliðar í neyðarvörnum sinna fjöldahjálp og félagslegu hjálparstarfi.
- Skyndihjálparhópar sinna sjúkragæslu á ýmsum mannamótum.
- Heimsóknavinir styðja einstaklinga sem búa við einsemd og félagslega einangrun.
- Í Hjálparsíma Rauða krossins 1717 svara sjálfboðaliðar símtölum frá fólki sem þarf aðstoð.
- Sjálfboðaliðar í fataverkefni selja notuð föt í Rauða kross búðunum, prjóna og hekla eða vinna við að taka á móti og flokka föt í flokkunarmiðstöðvum félagsins.
- Í athvörfum Rauða krossins fyrir fólk með geðraskanir er margvíslegur stuðningur sem sjálfboðaliðar taka þátt í. Einnig er starfrækt næturathvarf fyrir heimilislausar konur á höfuðborgarsvæðinu, Konukot.
- Starf með innflytjendum felst meðal annars í heimanámsaðstoð, heimsóknum til hælisleitenda og þátttöku í þjóðahátíðum.
- Löng hefð er fyrir starfi sjálfboðaliða á sjúkrahúsum LHS við rekstur sölubúða og bókasafnsþjónustu.
- Í starfi með ungu fólki er lögð áhersla á gagnkvæma aðlögun ungra innflytjenda og jafnaldra þeirra meðal annars með málörvun og samfélagsfræðslu.
- í Rauðakrosshúsunum er boðið upp á ýmis úrræði fyrir þá sem eiga erfitt vegna efnahagsþrenginga.
- Liðsauki eru sjálfboðaliðar sem bregðast við á neyðartímum en þurfa að öðru leyti ekki að vera virkir sjálfboðaliðar.