Reykjavíkurdeildin var stofnuð 27. apríl árið 1950, og var Jón Auðuns dómprófastur kjörinn fyrsti formaður deildarinnar.
Frá stofnun Rauða Kross Íslands og þar til Reykjavíkurdeild var stofnuð, sá Rauði kross Íslands um rekstur allra verkefna félagsins í Reykjavík.
Frá því deildin var stofnuð hefur umfang hennar aukist jafnt og þétt. Verkefnaval er fjölbreytt og sinna liðlega 600 sjálfboðaliðar á öllum aldri margskonar störfum í þágu samfélagsins í hverjum mánuði.
Skrifstofa Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands:
Laugavegi 120, 4. hæð. (Aríonbanka húsið við Hlemm)
Opið frá kl. 10:00 til 15:00 alla virkar daga
Sími: 545-0400
Netfang: reykjavik@redcross.is
Kennitala Reykjavíkurdeildar er 530269-1839.
| Jón Auðuns | 1950-1965 |
| Ragnheiður Guðmundsdóttir | 1965-1979 |
| Arinbjörn Kolbeinsson | 1979-1993 |
| Þór Halldórsson | 1993-2001 |
| Ómar Hlynur Kristmundsson | 2001-2005 |
| Stefán Yngvason | 2005- |
