Kópavogsdeild Rauða kross Íslands var stofnuð 12. maí 1958 en þá hafði bærinn nýlega fengið kaupstaðarréttindi og var í örum vexti. Rauða kross starfið þróaðist hægt fyrstu tvo áratugina en á áttunda áratugnum jukust tekjur deilda verulega og í lok áratugarins fann Kópavogsdeild þeim verðugan farveg í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð sem leysti úr brýnni þörf. Deildin tók forystu um byggingu heimilisins og hefur stutt dyggilega við uppbyggingu og rekstur þess síðan. Þar kviknaði einnig það verkefni sjálfboðaliða sem lengst hefur staðið og borið hróður deildarinnar víða; starf sjúkravina sem lagði grunninn að öflugri heimsóknaþjónustu deildarinnar nú á dögum.
Dvöl, athvarf fyrir geðfatlaða, tók til starfa í Kópavogi 1998 að frumkvæði Kópavogsdeildar og hefur deildin annast rekstur þess síðan í samvinnu við Kópavogsbæ og Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi. Markmiðið með starfsemi Dvalar er að rjúfa félagslega einangrun, draga úr fordómum og auka lífsgæði þeirra sem eiga við geðsjúkdóma er að stríða.
Fáeinum árum síðar stóð Kópavogsdeild ásamt öðrum að stofnun Fjölsmiðjunnar, verkþjálfunarsetri fyrir fólk á aldrinum 16-24 ára sem hefur fallið úr skóla og ekki náð að fóta sig á vinnumarkaði. Deildin hefur síðan tekið virkan þátt í rekstri og uppbyggingu Fjölsmiðjunnar með fjárframlögum og sjálfboðnu starfi. Fjöldi ungmenna hefur komist á rétta braut í lífinu eftir að hafa fengið þjálfun og aðstoð í Fjölsmiðjunni.
Árið 2003 opnaði Kópavogsdeild sjálfboðamiðstöð í hjarta bæjarins og hefur síðan lagt megináherslu á að byggja upp kröftugt og fjölbreytt sjálfboðið starf. Helstu verkefni sjálfboðaliða deildarinnar miða að því að draga úr einsemd og félagslegri einangrun og stuðla að aðlögun og virkri þátttöku innflytjenda í samfélaginu. Deildin tekur einnig virkan þátt í alþjóðastarfi hreyfingarinnar.