Með því að greiða 2.000 krónur á ári getur þú gerst félagsmaður í Kópavogsdeild Rauða kross Íslands og styrkt starf hennar og Rauða krossins, bæði innanlands og erlendis. Þeir félagsmenn sem styðja deildina með þessum táknræna stuðningi hafa rétt til að sitja aðalfund hennar og fá 10% afslátt af námskeiðum sem hún heldur.
Félagar í Rauða krossi Íslands tilheyra fjölmennustu mannúðarhreyfingu heims með 97 milljónir félaga og sjálfboðaliða í 185 löndum.
Rauði kross Íslands er öllum opinn. Í Rauða krossinum geta allir fengið hlutverk og framlag hvers og eins er mikils metið.