Rauði kross Íslands er þátttakandi í umfangsmiklu verkefni í sálrænum stuðningi sem hefur það markmið að minnka streitueinkenni hjá 10 – 12 ára börnum á Vesturbakkanum. Árangur af verkefninu hefur verið mældur reglulega, þ.e. gerðar hafa verið árlegar úttektir af utanaðakomandi aðila. Fram kemur í síðustu úttektarskýrslu að dregið hafi verulega úr streitueinkennum hjá börnunum.
Önnur verkefni sem Rauði kross Íslands styður í Palestínu eru bygging félagsmiðstöðvar í Palestínu, þjálfun sjúkraflutningamanna og umsjón með hingaðkoma ungmenna frá Palestínu sem styrkt er af friðarsjóði Yoko Ono.
Sálrænn stuðningur við börn
Stríðsátökin í Palestínu hafa haft mikil áhrif á börn, sem þar búa, sem lýsa sér í ýmsum hegðunarerfiðleikum og einnig svefntruflunum. Börnin sjálf tala um að þau séu hrædd við að fara út og lifa í sífelldum ótta um að foreldrar þeirra og systkini bíði bana.
Samstarf Rauða kross Íslands við Rauða hálfmánann í Palestínu hófst árið 1993. Félagið hefur stutt verkefni á svæðinu síðan og hefur meðal annars notið framlaga frá íslenska ríkinu. Frá árinu 2002 hefur Rauði kross Íslands unnið með öðrum Rauða kross félögum og stuðningi mannúðarverkefnasjóðs Evrópusambandsins, ECHO, að verkefni um sálrænan stuðning við börn á aldrinum 10-12 ára til að hjálpa þeim að takast á við áhrif stríðsátaka á daglegt líf.
Skólabörn í sex sveitarfélögum fá sálrænan stuðning, þ.e. í austurhluta Jerúsalem, Hebron, Jenin, Qalqilya, Tulkarem og Tubas.
Börnin taka þátt í vikulegum samverustundum sem haldnar eru í 126 skólum. Sérstök dagskrá er skipulögð fyrir yngri börn í sumarfríi skólanna. Foreldrar og skólastjórar fá fræðslu. Kennarar, starfsfólk félagsþjónustu og sjálfboðaliðar Rauða hálfmánans fá þjálfun.
Fjögur Rauða kross félög standa að verkefninu í samvinnu við Rauða hálfmánann í Palestínu, þ.e. Rauði kross Íslands, Danmerkur, Frakklands og Ítalíu.
Félagsmiðstöð í Betlehem
Með stuðningi utanríkisráðuneytisins hefur Rauði kross Íslands gert deild palestínska Rauða hálfmánans í Betlehem kleift að byggja félagsmiðstöð. Sjálfboðaliðar fá þjálfun sem gerir þeim kleift að standa að rekstri félagsmiðstöðvarinnar. Miðstöðin er opin síðdegis alla daga og á kvöldin. Þar er veitt fræðsla og einnig staðið að ýmiss konar menningar- og félagsstarfi fyrir börn, konur og aldraða.
Þjálfun sjúkraflutningamanna
Rauði hálfmáninn í Palestínu sér um stóran hluta sjúkraflutninga á Vesturbakkanum og Gasa-ströndinni. Félagið hefur ekki haft bolmagn til að veita sjúkraflutningamönnum þjálfun skv. stöðlum Evrópska endurlífgunarráðsins (European Resuscitation Council). Með aðstoð íslenskra lækna og sjúkraflutningamanna fá palestínskir sjúkraflutningamenn þjálfun sem gerir þá hæfari til að flytja sjúklinga við erfiðar aðstæður. Ætlast er til að palestínski Rauði hálfmáninn geti á endanum sinnt þjálfuninni sjálfur.