Rauði krossinn vinnur að fjölbreyttum verkefnum um land allt og er verkefnavalið metið eftir því hver þörfin er í samfélaginu hverju sinni.
Alþjóðlegt hjálparstarf Rauða kross Íslands er rekið í Malaví, Sierra Leone, Palestínu, Kákasusfjöllum og í Hvíta-Rússlandi auk þess sem félagið veitir neyðaraðstoð í kjölfar hamfara hvar sem er í heiminum.