Rauðakrosshúsið í Borgartúni í Reykjavík hefur starfað frá því í byrjun árs 2009. Starfsemin byggir á reynslu Rauða krossins af því að bregðast við áföllum og frá upphafi hafa gestir hússins sótt þangað sálrænan og félagslegan stuðning auk ráðgjafar um ýmis úrræði í samfélaginu.
Sams konar virknimiðstöðvar hafa starfað í rúmt ár í Kópavogi og Mosfellsbæ undir merkjum Rauðakrosshúss, en í Hafnarfirði kallast úrræðið Deiglan og í Grundarfirði Vinahúsið Grund. Miðstöðvarnar eru sérstaklega hugsaðar sem vettvangur fyrir atvinnuleitendur til að halda sér virkum í samfélaginu meðan á atvinnuleit stendur.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar á vef Rauðakrosshúsanna.