Verkefnið Félagsvinir atvinnuleitenda hefur það markmið að virkja og styrkja atvinnuleitendur í starfsleit sinni. Markmiðin eru að vinna gegn niðurbroti þeirra sem misst hafa vinnu, stækka tengslanet og auka möguleika til starfa. Lögð er áhersla á að auka bæði félagslega virkni þátttakenda og aðgengi þeirra að upplýsingum um þau úrræði sem eru í boði fyrir atvinnuleitendur. Virkni á meðan á atvinnuleit stendur eykur sjálfstraust og vellíðan sem gerir það að verkum að fólk er tilbúið að mæta til starfa þegar kallið kemur.
Verkefnið byggir á jafningjafræðslu, þeir sem veita leiðsögnina eru sjálfir atvinnuleitendur en hafa fengið fræðslu og þjálfun til þess að styðja og leiðbeina fólki í sömu stöðu. Hvert samband varir í þrjá mánuði og áætlað er að félagsvinir hittist einu sinni í viku. Félagsvinir hafa það að leiðarljósi að samböndin byggjast á jafnréttisgrundvelli, gagnkvæmri virðingu og tillitssemi. Suðurnesjadeild Rauða kross Íslands sér um framkvæmd verkefnisins.
Skráning í verkefnið
Þeir atvinnuleitendur sem hafa áhuga á því að fá nánari upplýsingar um verkefnið eða skrá sig í það geta óskað eftir viðtali hjá verkefnisstjóra, Guðmundi I. Jónssyni með því að senda póst á netfangið gij@redcross.is eða hringja í síma 420-4706.