Flóðbylgjan fimm árum síðar
Fimm árum síðar
Fréttir
Sendifulltrúar í Indónesíu
Sendifulltrúar á Sri Lanka
Raddir sendifulltrúa - myndband
Sálrænn stuðningur Srí Lanka
Lahewa
Lhokseumawe
Stuðningur við eftirlifendur
Verðlaunamyndir Þorkels

Sendifulltrúar á Sri Lanka

Þann 26. desember 2004 urðu náttúruhamfarir í Suður-Asíu sem teljast með þeim mannskæðustu í sögunni. Alþjóða Rauði krossinn sendi strax sama dag út hjálparbeiðni og á síðustu dögum ársins héldu fyrstu tveir sendifulltrúar Rauða kross Íslands til starfa á svæðinu, einn til að meta þörf fyrir áfallahjálp, annar til að taka þátt í samhæfingu aðgerða með skýrslugerð. Fyrir á svæðinu var þriðji sendifulltrúinn að störfum við þróunarsamvinnu.

Neyðaraðstoð í kjölfar Tsunami einkenndi störf sendifulltrúa Rauða kross Íslands á árinu 2005 en Rauða kross hreyfingin tók strax þátt í björgunaraðgerðum og síðar í uppbyggingarstarfi í löndunum við Indlandshaf.

Á árinu 2006 skipulögðu sendifulltrúar Rauða kross Íslands sálfélagslega þjónustu við fórnarlömb Tsunami á Sri Lanka og tóku þátt í uppbyggingu heilsugæslu ásamt því að skipuleggja almennt hjálparstarf í Acehéraði á eynni Súmötru í Indónesíu.

 

Elín Jónasdóttir sálfræðingur starfaði á Sri Lanka sem verkefnisstjóri í sálfélagslegri aðstoð á austurhluta eyjarinnar frá 26.janúar til 14. júlí 2005. Hún kom þar upp skrifstofu, réði starfsfólk og þjálfaði sjálfboðaliða í áfallahjálp. Verkefnið var unnið í samvinnu við danska Rauða krossinn.

Grein um störf hennar 02.06.2005

Grein frá Elínu 07.02.2005

Hlér Guðjónsson guðfræðingur starfaði við samhæfingu aðgerða með skýrslugerð á Srí Lanka á vegum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) frá 31.desember 2004 til 20. janúar 2005.

Grein frá Hlé 28.01.2005

Grein frá Hlé 16.01.2005

Kolbrún Þórðardóttir hjúkrunarfræðingur og kennari starfaði sem verkefnastjóri sálfélagslegrar þjónustu í austurhluta Sri Lanka frá 1. júlí 2005 til 5. júlí 2006. Verkefnið var unnið í samvinnu við danska Rauða krossinn.
  Maríanna Csillag hjúkrunarfræðingur starfaði með teymi norska Rauða krossins að heilsugæslu á Sri Lanka frá 11. janúar til 11. mars 2005.
  Sólveig Ólafsdóttir MA í alþjóðastjórnmálum og blaðamennsku starfaði á Sri Lanka frá 5. júní til 20. desember 2005 með Alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC) við upplýsingaöflun og upplýsingaveitu.
 

Þorkell Þorkelsson ljósmyndari fór í starfsferð til Indónesíu og Sri Lanka fyrir Rauða kross Íslands og Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC). Ljósmyndir Þorkels voru birtar í riti Alþjóðasambandsins og voru notaðar við upplýsingagjöf til almennings á Íslandi. Myndir Þorkels frá flóðasvæðunum voru valdar sem besta myndaröð ársins 2005 á ljósmyndasýningu blaðaljósmyndarafélags Íslands. Þorkell vann að verkefninu frá 15. september til 15. október 2005.

Þorkell var á ferð í Aceh héraði í september 2005 með Maude Fronberg upplýsingafulltrúa Alþjóða Rauða krossins. Grein eftir hann og myndir Þorkels 23.11.2005