Héraðs- og Borgarfjarðardeild
Stjórn

Héraðs- og Borgarfjarðardeild

Miðási 1-5
700 Egilsstöðum
863 3616, símatími 8-14
johannamaria@redcross.is
Kennitala 620780-2949
Opið þriðjudaga og fimmtudaga 10-14
Styrkja starfið

Matreiðsluklúbbur Rauða krossins á Egilsstöðum

Ef þú vilt læra alþjóðlega matreiðslu þá er tækifæri núna.

Sunnudaginn 22. janúar kl. 14-17 verður haldið námskeið þar sem brasilísk matargerð verður kynnt.

Námskeiðið er í Hlymsdölum, Miðvangi 6, Egilsstöðum.

Þáttökugjald er 2000 kr, allt efni er innifalið, 10 þáttakendur komast að.

Skráningar og fyrirspurnir hjá Johönnu í síma 863 3616 eða johannamaria@redcross.is

Fyrirhugað er að hafa röð námskeiða með leiðbeinendum frá ýmsum löndum sem kynna matreiðslu frá sínu heimalandi. Hefur þú áhuga á að kynna matreiðslu
í þínu heimalandi?

Föt sem framlag

Byrjum aftur eftir jólafrí og hittumst fyrst þriðjudaginn 17. janúar kl. 19.30, að Miðási 1-5 á Egilsstöðum, og aðra hverja viku eftir það.

Útbúum ungbarnapakka sem verða sendir til Hvíta-Rússlands og Malaví.

Allir eru velkomnir, það er ekki nauðsynlegt að kunna að prjóna eða sauma, nóg er að gera í pökkun og flokkun.

Líka er hægt að koma og sækja sér frítt garn á skrifstofu Rauða krossins, til að prjóna fyrir verkefnið heima við.

Starfsmaður deildarinnar er  Jóhanna Henriksson, johannamaria@redcross.is.

Nytjahúsið við gámasvæði á Tjarnarás á Egilsstöðum er opið miðvikudaga og fimmtudaga 16-18 og laugardaga 11-14.

Fatabúðin að Dynskógum 4 er opin á þriðjudögum og föstudögum 16-18 og á
laugardögum 11-14.

Stjórn deildar fundar í sameiginlegu húsnæði deildar og björgunarsveitar fyrsta mánudag hvers mánaðar.

Deildin var stofnuð 9. mars 1974. Fyrsti  formaður Guðmundur Sigurðsson, héraðslæknir.

Verkefni

Á verkefnaáætlun eru eftirfarandi verkefni

Rekstur nytjahúss
Fatamarkaður
Föt sem framlag
Heimsóknavinir
Íslenskuæfingar
Aðstoð við heimanám fyrir erlend börn
Réttargæsla fyrir hælisleitendur
Neyðaraðstoð til einstaklinga
Neyðarvarnir samkvæmt neyðarvarnaráætlun
Námskeið í skyndihjálp
Námskeiðið börn og umhverfi
Námskeið í sálrænum stuðningi
Fræðsla um Rauða krossinn í skólum og fyrir fermingarbörn
Skólum gefið skyndihjálparnámskeið
Grunnámskeið fyrir sjálfboðaliða
Ungmenni send á hlutverkaleikinn á flótta
Þáttaka í 112 deginum
Rauðakrossvikan
Stuðningur við stuðningshóp geðfatlaðra, aðstandenda og Kompuna
Stuðningsfjölskyldur fyrir nemendur í Menntaskólanum á Egilsstöðum
Vinadeildarsamstarf
URKI-AUST starf