Hafnarfjarðardeild Rauða krossins safnar notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Á höfuðborgarsvæðinu er Rauði krossinn í samstarfi við Sorpu um söfnun á fatnaði. Á öllum endurvinnslustöðum Sorpu er að finna söfnunrgáma Fatasöfnunar, einnig eru gámar við verslunin að Strandgötu 24 og Fjarðarkaup. Þeir eru hvítir og vandlega merktir Rauða krossinum .
Fatnaður sem Rauði krossinn fær nýtist þannig:
- hann er seldur beint til útlanda og ágóðinn rennur í Hjálparsjóð Rauða krossins
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi hér á landi
- hann er flokkaður og gefinn þurfandi erlendis
- hann er flokkaður og seldur í Rauða kross búðunum að Laugavegi 12, Laugavegi 116 og í Mjódd í Reykjavík og Strandgötu 24 Hafnarfirði.
Opnunartími verslana
Laugavegi 12 Reykjavík
Laugavegi 116 Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Mjódd Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 10-18, laugardaga 12-16, langa laugardaga 12-18
Strandgötu 24 Hafnarfirði
Opið mánudaga til föstudaga klukkan 12-18, lokað laugardaga
Sjálfboðaliðar sjá um flokkun í Fatasöfnun Rauða krossins að Skútuvogi 1, Reykjavík, á fatnaði og fataúthlutun. Misjafnt er hversu mikið hver og einn leggur af mörkum og er vinnuframlag ýmist reglubundið eða tilfallandi. Einnig vinna sjálfboðliðar í verslunum fjórum, einu sinni í viku í þrjá tíma í senn eða lengur.
Ég vil gerast sjálfboðaliði
Úthlutunarreglur í fataúthlutun
Skilríki Allir þurfa að framvísa skilríkjum til að gera grein fyrir sér.
Skráning Skráð verður nafn og kennitala.
Fatnaður Hver einstaklingur getur fengið allt að tvo poka af fatnaði hverju sinni. Fatasöfnunin lætur í té pokana.
Hve oft Sérhver getur fengið úthlutað fjórum sinnum á ári. Að minnsta kosti tveir mánuðir þurfa að líða á milli úthlutana.
Komi upp sérstök tilvik sem krefjast úrlausnar umfram áðurtalda aðstoð skal leita til Rauða kross deildar í viðkomandi sveitarfélagi.