Grindavíkurdeild
Stjórn
Föt sem framlag
Heimsóknaþjónusta
Neyðarvarnir
Námskeið
Ýmis önnur verkefni
Fréttabréf
Myndir úr starfinu

Ýmis önnur verkefni

Félagsleg verkefni

  • Sönghópurinn Friðarliljurnar

Fyrir jólin árið 2003 tóku nokkrar Rauðakrosskonur sig saman og sungu fyrir heimilisfólkið í Víðihlíð við mikla ánægju áheyrenda. Í framhaldi af þessari uppákomu var stofnaður sönghópur sem síðar hlaut nafnið Friðarliljurnar. Friðarliljurnar hafa síðan í ágúst 2004 sungið fyrir heimilisfólkið í Víðihlíð einu sinni í mánuði auk þess sem þær hafa tekið lagið við ýmis tækifæri á öðrum vettvangi. Frá 2008 hafa þær sungið með eldri borgurum Reykjanesbæjar í Reykjaneshöllinni einu sinni í mánuði, fyrir heimilisfólkið á Hlévangi í Reykjanesbæ og á Garðvangi í Garðinum.

  • Innflytjenda-verkefni s.s. kaup á bókum á erlendum málum fyrir bókasafn og kaup á íslenskuspilinu fyrir bókasafn og skóla.
  • Jólakonfekt til eldri borgara. Jólakort unnin af grunnskólabörnum og send eldri borgurum í Grindavík.
  • Stuðningur við sameiginlegar sumarbúðir Rauða krossins.


Kynningarstarf

  • Útgáfa fréttabréfs.
  • Heimasíða.
  • Bangsar merktir deildinni gefnir í sjúkrabifreið til barna sem þurfa sjúkraflutning.
  • Kynningardagur og 112 dagurinn; áhersla er lögð á kynningu á deildinni, verkefnum Rauða krossins og sjálfboðaliðum safnað.


Forvarnir og fræðsla

  • Leikskólabörnum boðið í heimsókn. Þau horfa á Hjálpfús og fá um leið fræðslu um Rauðakrossstarfið. Síðan  stutta sýnikennslu í skyndihjálp – stöðva blóðnasir- og skoðunarferð um sjúkraflutningabílinn. Að lokum er börnunum gefin endurskinsmerki.
  • Samstarf um ýmis verkefni sem unnin eru með Grunnskóla Grindavíkur, en einnig er skólinn styrktur með peningagjöf til kaupa á einhverju sem ungmennin telja nauðsynlegt. Meðal þess sem keypt hefur verið er bingóvél, 2 töfl, 2 gítarar og sófi.


Fjáröflunarverkefni

  • Göngum til góðs til styrktar börnum sem eiga um sárt að binda vegna náttúruhamfara eða stríðsátaka. Verkefnið framkvæmt annað hvert ár.
  • Tombólur til styrktar verkefna með börnum.