Grindavíkurdeild stendur fyrir ýmsum námskeiðum fyrir sjálfboðaliða og almenning sem ýmist eru á vegum deildarinnar eða á vegum Landsskrifstofu Rauða krossins.
Í mörg ár hefur deildin staðið fyrir námskeiðum í skyndihjálp fyrir 10. bekk Grunnskóla Grindavíkur. Einnig eru haldin námskeið fyrir sjálfboðaliða sem sinna heimsóknarþjónustu, skrifborðs- og viðbragðsæfingu fyrir fjöldahjálparstjóra sem sinna neyðarvörnum og námskeið í sálrænni og almennri skyndihjálp bæði fyrir almenning og sjálfboðaliða deildarinnar.
Upplýsingar um námskeið veita:
Ágústa Gísladóttir, 8231922, tryllirgk@simnet.is
Hjördís Rósa Halldórsdóttir, 6617041, rosy@internet.is
Einnig má finna upplýsingar um námskeið á vegum Landsskrifstofu Rauða krossins hér.
Námskeið í boði:
- Skyndihjálparnámskeið
- Sálrænn stuðningur
- Grunnnámskeið Rauða krossins
- Heimsóknavinanámskeið
- Fjöldahjálparnámskeið
- Börn og umhverfi
- Deildarnámskeið fyrir stjórnarfólk, verkefnastjóra og aðra sjálfboðaliða.