![]() |
Fimmtudaginn 3. nóvember buðu sjálfboðaliðar Rauða krossins á Norðfirði erlendum nýíbúum að hittast og spila saman Íslenskuspilið í
Þekkingarnetinu.
Markmið Íslenskuspilsins er að þjálfa nýbúa á auðveldan hátt í málnotkun og auðvelda þeim að tjá sig á íslensku. Heppnaðist það vel og verður
þessi stund áfram á fimmtudögum kl. 16:30.
Einnig er boðið upp á íslenskuæfingar á miðvikudögum á bókasafninu á Reyðarfirði kl 10:00 og á bókasafninu Eskifirði á kl. 17:00.
Rauði krossinn vill hvetja heimamenn til að benda nýjum íbúm á þessa skemmtilegu leið til að læra íslensku.
Allir eru velkomnir til að taka þátt, sama hver kunnáttan er.
| Deila þessari frétt: |
|
|
