Verkefnisstjóri:
Bryndís Friðgeirsdóttir
Suðurgata 12
400 Ísafjörður
Sími 456 3180
Farsími: 864 6754
Netfang: vestfirdir@redcross.is
Á Vestfjörðum starfa sex deildir: Bolungarvíkurdeild, Dýrafjarðardeild, Ísafjarðardeild, Súðavíkurdeild, Súgandafjarðardeild og Önundarfjarðardeild. Deildirnar starfa saman að mörgum verkefnum og er sú samvinna grundvöllur fyrir öflugu starf á svæðinu.
Allar deildir eiga fulltrúa í svæðisráði og er formaður ráðsins Pernilla Rein frá Ísafjarðardeild. Auk svæðisverkefna vinna allar deildir að hefðbundnum verkefnum s.s. neyðarvörnum, skyndihjálp, einstaklingsaðstoð og öðrum verkefnum í samræmi við stefnu félagsins og þarfir á svæðinu.
Rauða kross deildirnar á Vestfjörðum leita eftir aðstoð sjálfboðaliða við ýmis verkefni. Í leit sinni að sjálfboðaliðum og bakhjörlum spyrja deildirnar eftirfarandi spurninga:
• Viltu taka þátt í að byggja betra samfélag á Vestfjörðum?
• Langar þig til að kynnast nýju fólki og leyfa því að kynnast þér?
• Viltu læra eitthvað nýtt eða kenna öðrum það sem þú kannt?
• Viltu gefa eitthvað af þér og þiggja eitthvað í staðinn?
Verkefni deilda á Vestfjörðum
Fatasöfnun
Allar deildir taka á móti fötum. Þrír fatagámar eru staðsettir á Ísafirði, einn í Súgandafirði og einn í Bolungarvík. Dýrafjarðardeild tekur á móti fötum tvisvar í viku á sérstökum opnunartíma og Súðavíkurdeild tekur á móti fötum í versluninni Álftaveri. Flytjandi flytur fötin frítt fyrir deildir á svæðinu. Samstarf er við athvarfið Vesturafl sem rekur nytjamarkað á Ísafirði og tekur á móti fötum. Deildir á svæðinu nýta sér þjónustu Fatasöfnunar Rauða krossins sem sendir föt vestur eftir þörfum fyrir einstaklinga sem á þurfa að halda. Dýrafjarðardeild er reglulega með prjónakvöld og sendir afurðir sínar í ungbarnapakkana sem eru útbúnir á Patreksfirði og í verslanir félagsins á Höfuðborgarsvæðinu.
Námskeið
Almenn skyndihjálp og sálrænn stuðningur. Deildirnar á svæðinu eru öflugar í að breiða út þekkingu í skyndihjálp með stuðningi gömlu sparisjóðanna sem veittu veglegan styrk til verkefnisins árið 2007. Á hverju ári eru haldin námskeið í almennri skyndihjálp og sálrænum stuðningi fyrir ýmsa hópa í samfélaginu m.a. starfsfólk hjá stofnunum sveitarfélagsins, fyrirtæki, einstaklinga og skólafólk. Deildirnar halda árlega eitt ókeypis námskeið fyrir almenning í sálrænum stuðningi og annað í almennri skyndihjálp. Mæður með ung börn sem sækja reglulega foreldramorgna hjá Ísafjarðarkirkju fá kynningu í skyndihjálp. Undanfarin ár hafa deildirnar gefið öllum nemendum í 10. bekk á svæðinu námskeið í almennri skyndihjálp og er fyrirhugað að halda því áfram. Námskeiðið „Börn og umhverfi“ er haldið reglulega.
Leiðbeinendur í almennri skyndihjálp og sálrænum stuðningi taka reglulega þátt í endurmenntunarnámskeiðum og fræðslufyrirlestrum en deildirnar eru með á sínum snærum tvo leiðbeinendur í almennri skyndihjálp og tvo í sálrænum stuðningi sem starfa eingöngu fyrir deildirnar í skyndihjálparfræðslu. Leiðbeinendurnir í sálrænum stuðningi hafa tekið að sér sálrænan stuðning fyrir almenning í samvinnu við sjúkrahúsið.
Sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 9-12 ára
Mannúð og menning, sumarnámskeið fyrir börn er haldið árlega í Barnaskólanum í Hnífsdal og húsnæði deildar á Þingeyri. Börnin fá heimsóknir og kynningar frá fyrirtækjum og stofnunum, m.a. frá Fjölmenningarsetri, slökkviliði, sjúkraflutningamönnum og hjúkrunarfræðingi. Farið er í þjálfun í skyndihjálp, endurvinnslu, fjölmenningu, viðhorfi og virðingu og margt fleira.
Verkefni með skólum
Sú hefð hefur skapast að 10. bekkur á Ísafirði kemur í heimsókn til Rauða krossins og fær fræðslu um félagið í maí. Nemendur koma einnig í starfskynningar á svæðisskrifstofuna. Einnig koma leikskólabörn í heimsókn í tengslum við námsefnið Hjálpfús sem kennt er í öllum leikskólum á svæðinu. Deildirnar fara reglulega í grunnskólana með fræðslu um félagið.
Neyðarvarnir
Deildirnar uppfæra reglulega neyðarvarnaráætlanir á heimasíðu félagsins. Allir fjöldahjálparstjórar eru í boðunargrunni 112 og fá boð samtímis ef til útkalls kemur á svæði deildar. Fjöldahjálparnámskeið eru haldin reglulega annað hvort ár og eru fjöldahjálparstöðvar skipulagðar í öllum deildum.
Tombólubörn
Börn á öllum aldri halda reglulega tombólur og færa félaginu peninga. Alltaf eru birtar fréttir og myndir af þessum ungu sjálfboðaliðum og þeir fá einnig fræðslu þegar þeir koma með afraksturinn.
Kynningar og fræðsla
Sjálfboðaliðar fara í ýmsar heimsóknir til að kynna starf og einstök verkefni Rauða krossins eftir óskum frá stofnunum, félagasamtökum og öðrum áhugahópum.
Samstarfið er við Starfsendurhæfingu Vestfjarða þar sem frætt er um félagið og boðið upp á sjálfboðastörf. Atvinnuleitendur sem fá fræðslu og námskeiði í Fræðslumiðstöð Vestfjarða fá einnig reglulega fræðslu um félagið. Allar deildir taka þátt í sameiginlegri kynningarviku sem haldin er hjá félaginu annað hvert ár.
Heimsóknavinir. Heimsóknavinur er sjálfboðaliði sem heimsækir gestgjafa sinn að öllu jöfnu einu sinni í viku, oftast klukkustund í senn eða eftir samkomulagi. Verkefnið hentar öllum sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á mannlegum samskiptum. Boðið er uppá hefðbundnar heimsóknir inn á einkaheimili en einnig á stofnanir. Sjálfboðaliðar sækja námskeið sem sérstaklega er ætlað heimsóknavinum. Hægt er að óska eftir því að gerast heimsóknavinur eða gestgjafi fyrir heimsóknavin í síma 456 3180 og á netfanginu vestfirdir@redcross.is
Athvarfið Vesturafl
Vesturafl er miðstöð og endurhæfing fyrir fólk með skert lífsgæði sem vegna veikinda eða aðstæðna getur ekki tekið virkan þátt í samfélaginu, í vinnu eða inni á heimili. Markmiðið er að skapa hvetjandi stuðningsúrræði og efla sjálfstraust og ábyrgð til félagslegrar þátttöku í vinnu, námi og úti í samfélaginu. Mikið og gott samstarf er við athvarfið Vesturafl, sem deildirnar á svæðinu styrkja. Samvinnan er í formi fataflokkunar, öflun sjálfboðaliða, reksturs markaðar og ýmissa sjálfboðaverkefna. Í Athvarfinu er opið hús á aðfangadag í nafni Rauða krossins.
Starf með eldri borgurum
Deildirnar vinna ýmis verkefni með eldri borgurum heima í héraði og á svæðisvísu.
Eftirfarandi verkefni eru unnin með eldri borgurum á svæðisvísu:
Rauða kross bandið
Sjálfboðaliðar á vegum deildanna heimsækja dvalarheimili, sjúkrahús og aðra staði þar sem sungið er með fólki. Einnig syngur bandið við sérstök tækifæri í Vesturafli.
Harmonikkuball. Dansað er á miðjum degi af og til yfir veturinn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem sjálfboðaliðar spila fyrir dansi á harmonikku og deildirnar greiða húsaleiguna.
Öryggismál aldraðra. Ísafjarðardeild hefur unnið að verkefni sem heitir öryggismál aldraðra. Útbúið var efni sem samanstendur af leiðbeiningum, fræðslumöppu, bæklingum, glærum og leikinni kvikmynd. Allar deildir munu nýta fræðsluefnið.
Sumarferð. Á hverju ári fara sjálfboðaliðar í 4-6 daga sumarferð með eldri borgurum. Þessar ferðir hafa verið farnar í yfir 20 ár. Fyrir marga eldri borgara skipta þessar ferðir miklu máli þar sem þetta er þeirra eina tækifæri til að ferðast um landið. Þátttakendur greiða fyrir kostnað við ferðir, mat og gistingu.
Fjölmenning
Deildirnar hafa um árabil styrkt og tekið þátt í menningarlega fjölbreyttum verkefnum á svæðinu. Önundarfjarðardeild hefur verið með fjölmenningarlegar uppákomur s.s. matarkvöld, tungumálafræðslu, dans, o.fl. Gott samstarf er við Fjölmenningarsetur og Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni. Tveir leiðbeinendur eru á svæðinu í Viðhorfi og virðingu.
Sólstafir
Deildirnar eru bakhjarlar fyrir Sólstafi, systursamtök Stígamóta. Stuðningurinn er fólginn í að efla fræðslu fyrir sjálfboðaliða samtakanna. Samtökin voru stofnuð árið 2006 að frumkvæði Rauða kossins á Vestfjörðum og höfðu samtökin í fyrstu aðstöðu á svæðisskrifstofunni en hafa nú aðstöðu hjá Ráðgjafar- og nuddsetrinu á Ísafirði. Deildirnar skiptast á að vera bakhjarlar fyrir verkefnið.
Samstarfsaðilar
Rauði krossinn á Vestfjörðum er í góðu samstarfi við marga aðila á svæðinu í ýmsum verkefnum. Samstarfsaðilarnir eru m.a. Fjölmenningarsetur, Vinnumálastofnun, Starfsendurhæfing Vestfjarða, Svæðisskrifstofa fatlaðra, Háskólasetur Vestfjarða, slökkvilið Ísafjarðabæjar, Dvalarheimilið Hlíf, heimahjúkrun, heimaþjónusta, félag eldri borgara, félög innflytjenda (Pólverja og Taílendinga m.a.) og Rætur, félag áhugafólks um menningarfjölbreytni. Ekki má gleyma því góða samstarfi sem félagið á við alla skólana á svæðinu. Einnig er gott samstarf við fjölmiðla.