Á Norðurlandi starfa tólf deildir Rauða krossins með samtals á þriðja þúsund félaga. Deildarsvæðið nær frá Strandasýslu í vestri til Þórshafnar í austri.
Deildirnar vinna saman að mörgum verkefnum. Má þar nefna sjúkraflutninga, rekstur sumarbúða fyrir fatlaða einstaklinga 16 ára og eldri og málefnum innflytjenda. Einnig er starfandi skyndihjálparhópur deilda á svæðinu sem hittist og æfir sig reglulega.
Tvö athvörf fyrir geðfatlaða eru rekin á svæðinu, Laut á Akureyri og Setrið á Húsavík.
Margar deildir bjóða uppá heimsóknaþjónustu en hún felst í því að sjálfboðaliði heimsækir gestgjafa sinn að jafnaði einu sinni í viku eða eftir samkomulagi. Boðið er uppá heimsóknir inn á einkaheimili og stofnanir. Verkefnið hentar öllum sem hafa ánægju af mannlegum samskiptum og langar til að láta gott af sér leiða.
Sjálfboðaliðar fá þjálfun í samræmi við þau verkefnin sem þeir velja sér. Viljir þú koma til starfa með okkur þá eru verkefnin næg og þú munt taka þátt í að gera gott samfélag betra.
Verkefnisstjóri:
Guðný Björnsdóttir
Austurgörðum
671 Kópaskeri
Sími 465 2428
Farsími: 895 2428
Netfang gudnybj@redcross.is