Heimsóknaþjónusta
Heimsóknavinir
Beiðni um heimsóknavin

Heimsóknavinir gegn einsemd og einangrun

kopav_palina_is.jpg

Heimsóknaþjónusta er eitt af áhersluverkefnum deildarinnar. Sjálfboðaliðar okkar heimsækja fólk á öllum aldri sem búa við einsemd og félagslega einangrun.

Heimsóknavinir deildarinnar hafa um árabil heimsótt heimilisfólk á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð en þeir heimsækja einnig sambýli aldraðra og aðrar stofnanir. Börn í Rjóðrinu, hvíldarheimili fyrir langveik börn, njóta einnig félagsskapar heimsóknavina og heimsóknavinir sinna upplestri á líknardeildinni í Kópavogi. Þá eru einnig heimsóknir sjálfboðaliða í fangelsið í Kópavogi. Auk þess heimsækja sjálfboðaliðar okkar fólk í heimahúsum og veita því félagsskap með því að spila, spjalla og fara í göngu- eða ökuferðir, svo eitthvað sé nefnt.

Hundar taka líka þátt í heimsóknum til þeirra sem þess óska, bæði á stofnunum og í heimahúsum. Hundarnir eru oft hvatning til þeirra sem vilja fara út að ganga. Sérstakar undanþágur þarf til að fara í heimsóknir með gæludýr á sambýli og stofnanir en hundarnir þurfa einnig að uppfylla viss skilyrði til að fara með. Hundaeigendurnir sækja sérsniðin námskeið fyrir sjálfboðaliða áður en heimsóknir hefjast.