Álftanesdeild er ein deild af 50 hjá Rauða krossi Íslands og starfar í samræmi við grundvallarmarkmið Rauða krossins, lög Rauða kross Íslands og samþykktir aðalfundar félagsins.
Verkefni deildarinnar eru m.a. námskeið í almennri og sálrænni skyndihjálp, námskeiðið Börn og umhverfi (barnfóstrunámskeið), að annast neyðarvarnir skv. samningi við Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, þátttaka í fjáröflun félagsins og einnig svarar deildin neyðarbeiðnum hér heima og á alþjóðavísu. Innganga í deildina er öllum heimil og eru nýir sjálboðaliðar ávallt velkomnir.
Framkvæmdarstjóri deildarinnar: Nanna Kata Kristjánsdóttir símanr. 864 7004 nannakata@redcross.is
Allar nánari upplýsingar um störf Rauða krossins er að finna á www.raudikrossinn.is, í síma 864 7004(Nanna) og í síma 570 4000.