Sjálboðaliðar heimsækja einstaklinga sem eru félagslega einangraðir. Hlutverk heimsóknavina er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Hvað gert er saman fer allt eftir samkomulagi milli heimsóknarvinar og gestgjafa. Margir kjósa að lesa saman, hlusta á tónlist eða útvarp, spila, tefla, föndra eða tala saman. Einnig fara margir í göngu- eða ökuferðir, fara saman á kaffihús eða í bíó svo eitthvað sé nefnt.
Álftanesdeild Rauða krossins býður einnig upp á þjónustu þar sem hægt er að fá hund með í heimsókn því það hefur sýnt sig að í sumum tilfellum geta dýr best rofið einangrun.
Gestgjafi og heimsóknarvinur gera samkomulag um hversu tíðar heimsóknir eru. Venjulega er miðað við eina klukkustund í senn, einu sinni í viku.
Hafir þú áhuga á að gerast heimsóknavinur, vilt fá heimsóknavin eða þekkir einhvern sem hefur þörf fyrir heimsóknarvin þá hafðu endilega samband við deildina í síma 864 7004, netfang alftanes@redcross.is