Rauða krossins á Akureyri er ætluð sjúklingum og/eða aðstandendum þeirra sem sækja þurfa læknisþjónustu til Akureyrar. Íbúðin sem stendur við Þingvallastræti ( 20 ) er vel staðsett með tilliti til þeirrar þjónustu sem fólk þarf að sækja. Í íbúðinni er ágæt aðstaða fyrir 4-5 manns, 3 herbergi, stofa, snyrting, eldhús og þvottaaðstaða. Nánari upplýsingar og umsjón með útleigu á íbúðinni er í höndum starfsfólks á símavaktar Sjúkrahússins á Akureyri, sími 463 0100. Símavaktin er við B ingang sjúkrahússins og er opin frá kl. 8:00 - 21:00 mán - fös. og kl. 10:00 - 20:00 laug - sun.
Lyklar að íbúðinni eru afhentir eftir kl. 13 á komudag og þeim skal skila fyrir kl. 11 á brottfarardag.
Ekki þarf beiðni frá lækni eða sjúkrastofnun til að sækja um íbúðina.
Hér má sjá myndir af íbúðinni: