![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Hjálparsími Rauða krossins
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er gjaldfrjáls sími sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa á aðstoð að halda en Hjálparsíminn gegnir því hlutverki að veita sálrænan stuðning og ráðgjöf til fólks á öllum aldri. Ókeypis er að hringja úr öllum símum og trúnaður er alger.
Fataúthlutanir og fatabúðir
Fataúthlutun á höfuðborgarsvæðinu fer fram að Laugavegi 116 í Reykjavík á miðvikudögum milli kl. 10 og 14. Gengið inn af bílastæði Grettisgötumegin. Suðurnesjadeild, Akureyrardeild og Skagafjarðardeild Rauða krossins úthluta einnig fatnaði í húsnæði deildanna. Þá útvega aðrar deildir fatnað ef til þeirra er leitað. Einnig rekur Rauði krossinn fjórar verslanir sem selja notaðan fatnað:
Laugavegi 12, Reykjavík.
Laugavegi 116, Reykjavík.
Strandgötu 24, Hafnarfirði.
Fjarðarbraut 48, Stöðvarfirði.
Sjálfshjálp fyrir unglinga
Í fræðsluefninu „Ef bara ég hefði vitað” fjallar um hvernig hægt er að hjálpa sjálfum sér og öðrum í kjölfar alvarlegra atburða, eins og skilnað, dauðsfall, umferðarslys, alvarlegra ólæknandi sjúkdóma, þunglyndi, ástarsorg og einelti. Fræðsluefnið er vistað á vef Rauða krossins; www.raudikrossinn.is/efbara
Fræðsluþættir um sálrænan stuðning
Stuttir fræðsluþættir um sálrænan stuðning þar sem leitast er við að útskýra hvaða áhrif kreppan hefur á líðan fólks og bent á leiðir til sjálfshjálpar. Þættirnir voru sýndir í Ríkissjónvarpinu í febrúar 2009. Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur Rauða krossins og verkefnisstjóri í sálrænum stuðningi, hefur umsjón með þáttunum. Þættirnir eru vistaðir á myndbandasíðu Rauða kross Íslands á YouTube.
Fjölbreytt sjálfboðastarf Rauða krossins
Deildir Rauða krossins um allt land halda úti öflugu mannúðarstarfi sem borið er uppi af um 2000 sjálfboðaliðum félagsins. Sjálfboðaliðar á öllum aldri starfa við mismunandi verkefni sem öll hafa það sameiginlegt að láta í té þjónustu sem er íslensku samfélagi afar dýrmæt. Nú á tímum efnahagsþrenginga verða sum hefðbundin verkefni Rauða krossins enn umfangsmeiri en á sama tíma verða ný verkefni til, bæði vegna fleiri skjólstæðinga og sjálfboðaliða. Verkefnin eru fjölbreytt og ættu allir að geta fundið sér farveg í sjálfboðnu starfi félagsins. Skráning fer fram hér.




